Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 10. mars 2018 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Moyes: Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt
Mynd: Getty Images
David Moyes var að vonum svekktur eftir tap lærisveina sinna gegn Burnley í dag, leiknum lauk með 0-3 sigri Burnley.

Moyes var skiljanlega einnig svekktur með hegðun stuðningsmanna West Ham en þeir hlupu inn á völlinn í síðari hálfleik í leiknum í dag til að láta sína menn heyra það.

„Leikmennirnir eru alveg með það á hreinu að þeir eru að spila fyrir stuðningsmennina, þeir vilja gera vel. Við viljum að stuðningsmennirnir styðji okkur, en það er ekki boðlegt að fara algjörlega yfir strikið og hlaupa inn á völlinn," sagði Moyes.

„Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt og ég sá í dag á stjóraferli mínum. Við þurfum á stuðningsmönnunum að halda. Við þurfum að fá stuðninsmennina í lið með okkur en þeir geta ekki látið eins og þeir létu í dag."
Athugasemdir
banner
banner
banner