Paul Pogba gat ekki tekið þátt í leik Manchester United og Liverpool í dag vegna meiðsla sem hann hlaut á æfingu í gær. „Hann meiddist á síðustu mínútu á síðustu æfingunni fyrir leik," sagði Jose Mourinho, stjóri United, eftir leikinn í dag.
United tókst að vinna þó Pogba væri frá og var það Marcus Rashford sem stal senunni í 2-1 sigri.
United tókst að vinna þó Pogba væri frá og var það Marcus Rashford sem stal senunni í 2-1 sigri.
Pogba var auðvitað mættur á Old Trafford þó hann væri meiddur.
Eftir leik truflaði hann viðtal við knattspyrnustjóra sinn Mourinho. Orðrómur hefur verið um ósætti þeirra á milli en af þessum myndum að dæma virðast þeir nú ekki í fýlu út í hvorn annan.
Hér að neðan er myndband en Pogba fór líka til Jurgen Klopp, stjóra Liverpool, og heilsaði honum.
Mourinho and Pogba after the game #MUFC pic.twitter.com/LtbA5QEMNr
— Devils Latest (@Devils_Latest) March 10, 2018
Athugasemdir