,,Ég fór frá Motherwell og lenti fyrir utan félagaskiptagluggann. Ég heyrði af Stjörnunni og fannst það vera spennandi tækifæri. Þess vegna er hér," sagði Gunnar Nielsen við Fótbolta.net í dag.
Gunnar er landsliðsmarkvörður Færeyja en hann mun verja mark Stjörnunnar í sumar.
Gunnar er landsliðsmarkvörður Færeyja en hann mun verja mark Stjörnunnar í sumar.
,,Mamma mín er frá Íslandi og ég hef komið oft hingað. Ég veit hversu vel Stjarnan stóð sig á síðasta tímabili en ég veit ekki mikið um hin liðin ennþá."
,,Fólk í Færeyjum fylgist með íslenska boltanum. Kannski ekki með deildinni en fólk hefur hrifist af árangri landsliðsins. Það hafa líka nokkrir Færeyingar spilað á Íslandi og við höfum fylgst með þeim."
Hér að ofan má sjá viðtalið við Gunnar þar sem hann fær spurningar á íslensku og svarar á ensku.
Gunnar verður gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 milli 12 og 14 á morgun.
Athugasemdir