Fotbolti.net
10.04.17 - 21:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lengjubikarinn: Þægilegt hjá FH og Grindavík

Kristján Flóki gerði tvö mörk fyrir FH.

Kristján Flóki gerði tvö mörk fyrir FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er ljóst hvaða lið það verða sem spila í undanúrslitum Lengjubikars karla. FH og Grindavík urðu nú rétt í þessu seinni tvö liðin til að trygja sig áfram.

FH mætti Breiðabliki í Fífunni og komust þar fyrir eftir 20 mínútur. Robbie Crawford, sem samdi við FH á dögunum, skoraði markið, en hann er fyrrum leikmaður Rangers í Skotlandi.

Kristján Flóki Finnbogason lagði upp fyrsta mark FH, en hann gerði út um leikinn í seinni hálfleiknum með tveimur mörkum. Það fyrsta kom á 70. mínútu og það síðara mínútu síðar.

Lokatölur 3-0 fyrir FH, en þeir mæta KR-ingum í undanúrslitum. Hin tvö liðin sem mætast eru Grindavík og KA. Grindvíkingar gerðu góða ferð á Skagann í kvöld og höfðu getur gegn heimamönnum í Akraneshöllinni.

Ingvar Þór Kale setti tóninn eftir eina mínútu þegar hann gerði sjálfsmark. Andri Rúnar Bjarnason bætti við öðru marki áður en Hafþór Pétursson minnkaði muninn, 2-1 fyrir Grindavík.

Andri Rúnar gerði sitt annað mark eftir tæpan hálftíma og í upphafi seinni hálfleiks gerði William Daniels fjórða mark Grindavíkur.

Nýliðarnir tveir í Pepsi-deildinni, KA og Grindavík munu því mætast í undanúrslitum, en það verður fróðlegt að sjá hvernig það fer.
Breiðablik 0 - 3 FH
0-1 Robert David Crawford (\'20)
0-2 Kristján Flóki Finnbogason (\'70)
0-3 Kristján Flóki Finnbogason (\'71
Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn

ÍA 1 - 4 Grindavík
0-1 Ingvar Þór Kale (\'1 , sjálfsmark)
0-2 Andri Rúnar Bjarnason (\'12)
1-2 Hafþór Pétursson (\'15 )
1-3 Andri Rúnar Bjarnason (\'29 )
1-4 William Daniels (\'53)
Rautt spjald: Sam Hewson, Grindavík (\'77)
Grindavík vann ÍA.

Grindavík vann ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.