þri 10. apríl 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Championship í dag - Íslendingaslagur í beinni
Mynd: Getty Images
Aston Villa tekur á móti Cardiff City í beinni útsendingu í ensku Championship deildinni í dag.

Aron Einar Gunnarsson er á mála hjá Cardiff á meðan Birkir Bjarnason hefur verið að gera góða hluti með Aston Villa.

Liðin eru bæði í baráttu um að komast upp um deild. Cardiff vermir sem stendur annað sætið og er þar með tveimur stigum meira en Fulham og leik til góða. Annað sætið gefur þátttökurétt í Úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Villa er í umspilssæti, átta stigum fyrir ofan Millwall og sjö stigum frá Cardiff.

Jón Daði Böðvarsson er þá kominn aftur úr meiðslum og tekur eflaust þátt í útileik Reading gegn Fulham.

Hörður Björgvin Magnússon hefur misst af síðustu þremur leikjum Bristol vegna meiðsla og er tæpur fyrir leikinn gegn Birmingham í kvöld.

Leikir kvöldsins:
18:45 Aston Villa - Cardiff (Stöð 2 Sport 3)
18:45 Bristol - Birmingham
18:45 Fulham - Reading
18:45 Burton - Hull
18:45 Ipswich - Barnsley
18:45 Nottingham - Brentford
18:45 Preston - Leeds
18:45 QPR - Sheffield Wed
18:45 Sheffield Utd - Middlesbrough
18:45 Sunderland - Norwich
19:00 Bolton - Millwall
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leeds 38 25 7 6 70 28 +42 82
2 Leicester 37 26 4 7 74 33 +41 82
3 Ipswich Town 38 24 9 5 80 49 +31 81
4 Southampton 36 22 7 7 73 47 +26 73
5 West Brom 38 19 9 10 59 36 +23 66
6 Norwich 38 18 7 13 69 54 +15 61
7 Hull City 37 16 10 11 53 46 +7 58
8 Coventry 37 15 12 10 59 43 +16 57
9 Preston NE 37 16 8 13 49 54 -5 56
10 Middlesbrough 38 16 6 16 53 52 +1 54
11 Cardiff City 38 16 5 17 43 51 -8 53
12 Sunderland 38 14 6 18 48 45 +3 48
13 Watford 38 12 12 14 53 51 +2 48
14 Bristol City 38 13 8 17 42 45 -3 47
15 Swansea 38 12 10 16 48 58 -10 46
16 Millwall 38 11 10 17 36 50 -14 43
17 Blackburn 38 11 9 18 51 64 -13 42
18 Plymouth 38 10 11 17 54 62 -8 41
19 Stoke City 38 11 8 19 35 53 -18 41
20 QPR 38 10 10 18 36 50 -14 40
21 Birmingham 38 10 9 19 42 59 -17 39
22 Huddersfield 38 8 15 15 42 61 -19 39
23 Sheff Wed 38 11 5 22 30 61 -31 38
24 Rotherham 38 3 11 24 30 77 -47 20
Athugasemdir
banner
banner
banner