Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 10. apríl 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Del Piero: Juve og Roma geta komið til baka
Mynd: Getty Images
Ítalska goðsögnin Alessandro Del Piero segir alls ekki útilokað fyrir Roma og Juventus að komast í undanúrslit Meistaradeildarinnar.

Roma tapaði 4-1 í Barcelona á meðan Juventus tapaði 3-0 á heimavelli gegn Real Madrid.

„Juventus og Roma eru frábær lið og þau geta ennþá komist í undanúrslitin," sagði Del Piero við RMC Sport.

„Það getur allt gerst í fótbolta, jafnvel gegn stórveldum eins og Real Madrid og Barcelona. Andlega hliðin skiptir öllu máli, allt er hægt með nægum viljastyrk.

„Það verður erfitt, en sem Ítali og stuðningsmaður Juventus vona ég að bæði lið komist áfram."

Athugasemdir
banner