Íslenska kvennalandsliðið heimsækir það færeyska í undankeppni fyrir HM 2019 í dag.
Ísland hefur byrjað undankeppnina ótrúlega vel og bar meðal annars sigur úr býtum gegn feykisterku landsliði Þjóðverja í Þýskalandi.
Ísland hefur byrjað undankeppnina ótrúlega vel og bar meðal annars sigur úr býtum gegn feykisterku landsliði Þjóðverja í Þýskalandi.
Færeyingar eru stigalausir á botni riðilsins, með engin mörk skoruð og 32 fengin á sig. Ísland vann fyrri viðureignina á heimavelli, 8-0.
Takist stelpunum að hafa betur í dag verða þær komnar í frábæra stöðu í undankeppninni. Þær munu eiga þrjá leiki eftir, allir á heimavelli gegn Slóveníu, Þýskalandi og Tékklandi. Sjö stig úr þessum leikjum auk sigurs gegn Færeyjum myndi gulltryggja þátttöku á HM.
Úlfarnir mæta þá Kórdrengjum í C-deild Lengjubikarsins í kvöld. Kórdrengir geta jafnað Ými á stigum á toppi riðilsins með sigri.
Landslið - A-kvenna HM 2019
14:00 Slóvenía-Þýskaland ()
16:00 Færeyjar-Ísland (Þórshöfn í Færeyjum)
Lengjubikar karla - C deild - Riðill 1
20:00 Úlfarnir-Kórdrengir (Framvöllur - Úlfarsárdal)
Æfingaleikur
19:00 Fram - Fjölnir (Framvöllur - Safamýri)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir