„Við byrjuðum erfiðlega á móti vindinum og náum ekki tökum á spilinu hjá okkur. Svo missum við mann útaf, markmann og í rauninni er alltaf erfitt að vera manni færri. Við erum svona ágætlega inn í þessu í seinni hálfleik og vorum meira með boltann“, sagði Edda eftir 1-0 tap gegn Grindavík á Alvogenvellinum í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 0 - 1 Grindavík
„Við byrjuðum erfiðlega á móti vindinum og náum ekki tökum á spilinu hjá okkur. Svo missum við mann útaf, markmann og í rauninni er alltaf erfitt að vera manni færri. Við erum svona ágætlega inn í þessu í seinni hálfleik og vorum meira með boltann“, sagði Edda eftir 1-0 tap gegn Grindavík á Alvogenvellinum í kvöld.
KR liðinu hefur gengið illa að finna markið í byrjun móts og hefur enn ekki tekist að skora þegar þrjár umferðir eru búnar. Hvað er að klikka?
„Kannski erum við ekki að skapa okkur nógu mörg færi en mér finnst við vera að búa okkur til einhver færi í hverjum leik. Svo held ég að það myndi hjálpa okkur að komast nær markinu með boltann."
KR hefur alls ekki byrjað mótið nógu vel og spurning hvort liðið þurfi að styrkja sig enn frekar fyrir sumarið.
„Það gæti verið að ég fengi eina á láni úr öðru félagi í efstu deild."
Viðtalið við Eddu í heild má sjá í sjónvarpinu hér fyrir ofan.
Athugasemdir