Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   fös 10. júní 2016 17:37
Ívan Guðjón Baldursson
De Gea hélt fréttamannafund: Allt lygar - Ekki á leið heim
Mynd: Getty Images
Það voru afar háværir orðrómar fyrr í dag þess efnis að David de Gea væri á leið heim frá Frakklandi vegna meints kynferðisbrotamáls.

Orðrómarnir urðu svo háværir að De Gea þurfti að halda fréttamannafund í Frakklandi til að staðfesta að hann hafði ekki hugmynd um hvað væri í gangi.

„Ég vil byrja á því að segja að þessi orðrómur kemur mér á óvart. Þetta eru ekkert nema lygar og rógburður og ég er ekki á leið heim frá Frakklandi," sagði De Gea á fundinum.

„Fjölmiðlar mega skrifa það sem þeir vilja, lögmennirnir mínir sjá um öll svona mál og ég ætla ekki að spá meira í þessu, ég er róleg og hljóðlát manneskja og þetta mun ekki hafa nein áhrif á mig.

„Ég hef ekki hugmynd um hvar þessar sögur byrjuðu eða hvernig þær rötuðu í fjölmiðla. Það hlýtur einhver að vera að reyna að skemma ímynd okkar."

Athugasemdir
banner