Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. júní 2018 21:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Liverpool Echo 
Varnarmaður Rússa: Hvernig stopparðu Salah? Getur gert það sem Ramos gerði
Ilya Kutepov hér í rauða búningnum.
Ilya Kutepov hér í rauða búningnum.
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah er í kapphlaupi við tímann að ná fyrst leik Egyptalands á HM í Rússlandi.

Salah er í endurhæfingu vegna meiðsla sem hann hlaut í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir baráttu við Sergio Ramos.

Sjá einnig:
Svo virðist sem Salah sé ekki búinn að fyrirgefa Ramos

Salah er að koma úr ótrúlegu tímabili með Liverpool og því skiljanlgt að andstæðingar hugsi sérstaklega hvernig eigi að stoppa hann. Einn af andstæðingum Salah á HM verður rússneski varnarmaðurinn Ilya Kutepov, en hann segist geta lært af aðferðum Ramos.

„Salah veldur mér ekki sérstökum áhyggjum. Hvernig stopparðu hann? Þú getur gert það sem Sergio Ramos gerði, til dæmis," sagði Kupetov.

„Hann sýndi okkur eina leið til að stöðva hann."

Kupetov segist ekki hafa verið vonsvikinn þegar Salah meiddist en vonast samt til þess að hann spili á HM.

„Ég óska honum góðs bata og ég verð ánægður ef hann spilar á HM vegna þess að það hjálpar þér að bæta þig ef þú spilar gegn svona snillingum."
Athugasemdir
banner