Austurríki 0 - 3 Brasilía
0-1 Gabriel Jesus ('36)
0-2 Neymar ('63)
0-3 Philippe Coutinho ('69)
0-1 Gabriel Jesus ('36)
0-2 Neymar ('63)
0-3 Philippe Coutinho ('69)
Brasilía rúllaði yfir Austurríki í síðasta æfingaleiknum fyrir Heimsmeistaramótið.
Liðin mættust í Vín og stjórnuðu Brassar gangi leiksins frá upphafi til enda. Heimamenn áttu tvö skot á rammann.
Gabriel Jesus gerði fyrsta mark leiksins þegar hann slapp óvart í gegnum vörnina eftir að skot fór af brasilískum leikmanni og breytti um stefnu.
Neymar tvöfaldaði forystuna í síðari hálfleik þegar hann lék glæsilega á varnarmann Austurríkis áður en hann kláraði laglega.
Philippe Coutinho gerði þriðja og síðasta markið eftir laglegt samspil við fyrrverandi liðsfélaga sinn Roberto Firmino.
Escalação oficial da #SeleçãoBrasileira para o amistoso contra a Áustria! 📋⚽🇧🇷 #GigantesPorNatureza pic.twitter.com/QdtPa71Hjx
— CBF Futebol (@CBF_Futebol) June 10, 2018
Athugasemdir