Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fim 10. júlí 2014 22:26
Daníel Freyr Jónsson
Marca: Liverpool býður 50 milljónir í Benzema
Liverpool hefur gert Real Madrid tilboð í framherjann Karim Benzema samkvæmt spænska dagblaðinu Marca.

Tilboðið er sagt hlóma upp á 50 milljónir evra, eða sem nemur 38,5 milljónum punda.

Liverpool þarf að finna sér nýjan framherja í sumar þar sem ljóst er að Luis Suarez verður seldur til Barcelona.

Verði af félagaskiptunum yrði Benzema dýrasti leikmaður í sögu Liverpool. Andy Carroll ber þann titil í dag, en hann kostaði Rauða herinn 35 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner