Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 10. júlí 2015 14:58
Elvar Geir Magnússon
Miðasala á Ísland - Kasakstan hófst óvart á midi.is
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net fékk ábendingu um það að á midi.is sé hægt að kaupa sér miða á landsleik Íslands og Kasakstan sem fram fer sunnudaginn 6. september.

Smelltu hér til að fara í miðasöluna

Ekki er vitað hvort miðasalan hafi verið sett af stað fyrir mistök eða hvort ákveðið hafi verið að hefja hana án þess að auglýsa.

Fótbolti.net veit um þónokkra aðila sem hafa keypt sér miða í gegnum þennan glugga á leikinn en Hafliði Breiðfjörð framkvæmdastjóri Fótbolta.net skellti sér til dæmis á sjö miða á leikinn eins og sjá má hér að neðan.

Gríðarleg eftirspurn hefur verið eftir miðum á landsleiki Íslands.

UPPFÆRT: Eftir að fréttin var birt var lokað fyrir miðasöluna á midi.is svo greinilegt er að salan var sett af stað fyrir mistök. Ljóst er að fjölmargir náðu að tryggja sér miða í gegnum þennan glugga.






Athugasemdir
banner