Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. ágúst 2014 15:35
Elvar Geir Magnússon
Heimild: 433.is 
Hólmar Örn á leið til Rosenborg
Mynd: Getty Images
Hólmar Örn Eyjólfsson er að ganga í raðir Rosenborg í Noregi samkvæmt heimildum 433.is. Hólmar hefur verið í leit að félagi síðan samningur hans við þýska félagið Bochum rann út.

Hólmar er miðvörður og á einn leik að baki með íslenska A-landsliðinu auk þess að hafa leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.

Rosenborg er sem stendur í fimmta sæti norsku úrvalsdeildarinnar en um er að ræða stærsta félagslið landsins.

Hólmar er 24 ára og er uppalinn hjá HK en var áður í herbúðum West Ham þar sem hann var með yngri liðum félagsins.
Athugasemdir
banner
banner