Enska úrvalsdeildarfélagið Stoke City hefur hafnað beiðni Swansea City um að fá Joe Allen til félagsins. Það er BBC sem greinir frá þessu.
Gylfi Þór Sigurðsson er að öllum líkindum á leið frá Swansea til Everton fyrir metupphæð á næstu dögum og þarf Swansea því að styrkja miðsvæðið.
Swansea hefur nú leitast til Stoke City til að fá Joe Allen til félagsins en hann hefur áður verið á mála hjá félaginu.
Stoke hefur hins vegar engan áhuga á því að selja Allen og hefur hafnað beiðni Swansea.
Allen hefur leikið fyrir 150 leiki fyrir Swansea á ferlinum og skorað 7 mörk en hann fór þaðan til Liverpool áður en hann endaði í Stoke þar sem hann hefur verið að gera góða hluti.
Athugasemdir