Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 10. ágúst 2017 23:13
Brynjar Ingi Erluson
Donni: Dómarinn átti að reka hana útaf
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Þórs/KA, var ósáttur með að fá ekki þrjú stig út úr leiknum gegn Fylki í kvöld. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli en hann vildi fá leikmann Fylkis útaf.

Lestu um leikinn: Þór/KA 3 -  3 Fylkir

Fylkisliðið var 2-1 yfir í hálfleik og komst í þriðja markið en Þór/KA jafnaði á lokamínútunum með tveimur góðum mörkum

„Ég er svekktur með að vinna ekki leikinn. Við hefðum átt að skora fleiri mörk en að sama skapi mjög svekktur að fá á okkur þrjú mörk," sagði Halldór við Fótbolta.net.

„Fylkisliðið er mjög flott og breytt lið frá því fyrir hlé. Eru með nýjan þjálfara og fullt af nýjum leikmönnum. Við vorum eftir á í baráttunni, við vorum með boltann og sköpuðum færi en það er vont að fá tvö mörk á okkur rétt fyrir leikhlé."

Halldór var ósáttur með að fá ekki rautt spjald er Sandra María Jessen var tekin niður í teignum þegar Þór/KA fékk víti. Þá telur hann að dómarin hafi tekið mark af liðinu á 74. mínútu.

„Dómarinn átti að reka manninn útaf hún var komin ein í gegn og það er vanalega rautt. Það er kannski búið að breyta reglunum og svo skoruðum við bara löglegt mark í lokin en hann ákveður að dæma á okkur aukaspyrnu í staðinn," sagði hann ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner