Elín Metta átti mjög góðan leik í 2-0 sigri Vals á Blikum í kvöld. Hún skoraði seinna markið sem var stórglæsilegt einstaklingsframtak.
Hvernig er að vera byrjuð að spila í Pepsideildinni aftur?
"Það er mjög skemmtilegt að vera byrjuð að spila í Pepsideildinni aftur og gaman að hitta stelpurnar aftur, hanga í klefanum og svona. Það er stemming!

Lestu um leikinn: Valur 2 - 0 Breiðablik
Var ekkert erfitt að gíra sig í deildinaeftir Hollandsreisuna?
"Nei alls ekki, auðvitað er umgjörðin meiri þar og fleiri á vellinum. En alltaf gaman að spila hér."
Um markið sagði Elín:
"Ég fékk hann út á endalínu og ætlaði að setja hann. Það tókst, náði að klína honum upp. Viðurkenni það að þetta var virkilega góð tilfinning að skora þetta mark."
Málfríður Erna hefur borið fyrirliðabandið í sumar hjá Val. Hún var í byrjunarliðinu í kvöld en Elín Metta var með bandið í kvöld: "Já þetta er held ég í fyrsta skipti sem ég er fyrirliði í meistaraflokki, það er mikill heiður og ég er gríðarlega stolt af því. "
Athugasemdir