Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 10. ágúst 2017 19:30
Magnús Már Einarsson
Newcastle vill fá Kenedy frá Chelsea
Mynd: Getty Images
Newcastle er í viðræðum við Chelsea um að fá kantmanninn Kenedy á láni.

Rafa Benitez, stjóri Newcastle, fundaði með Brasilíumanninum í London í gær.

Benitez vonast til að fá Kenedy á láni áður en Newcastle mætir Tottenham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag.

Hinn 21 árs gamli Kenedy var sendur heim úr æfingaferð Chelsea í Kína á dögunum eftir ummæli sem hann lét falla um Kínverja á Instagram.

Kenedy baðst afsökunar á ummælunum í kjölfarið en Chelsea refsaði honum fyrir Instagram færsluna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner