Sandra María Jessen, leikmaður Þórs/KA í Pepsi-deild kvenna, var ánægð með karakterinn sem liðið sýndi er það kom til baka gegn Fylki og náði í stig í 3-3 jafntefli á Akureyri í dag.
Lestu um leikinn: Þór/KA 3 - 3 Fylkir
Þór/KA hefur verið með mikla yfirburði í deildinni og er á toppnum en lenti í basli í kvöld. Liðið komst yfir með markið frá Söndru Stephany Mayor Gutierrez en Fylkir skoraði svo næstu þrjú mörk. Þór/KA sýndi þó karakter og jafnaði á síðustu mínútum leiksins.
„Úr því sem komið var vorum við sáttar með eitt stig en þetta var ekki okkar dagur. Við vorum klaufar og fengum á okkur þrjú mörk, úr fáum færum," sagði Sandra við Fótbolta.net.
„Við höfum ekki verið mikið í því að lenda undir í sumar, þannig það var eitthvað nýtt. Mér fannst samt mjög sterkt hjá okkur að sýna karakter eftir að hafa lent 3-1 undir og koma til baka en við áttum að byrja leikinn af krafti og hefði verið mikilvægt að halda í þetta þegar við skoruðum fyrsta markið."
Sandra segir að mótið sé núna í þeirra höndum.
„Þetta er spennandi og við þurfum að gíra okkur klárlega í næsta leik og gera enn betur ef við ætlum að klára þetta. Þetta er í okkar höndum og við þurfum að klára okkar leiki," sagði hún í lokin.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir