Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 10. september 2017 18:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Brynjar: Vorum með bakið upp við vegg
Brynjar, þjálfari Þróttar Vogum var ánægður með sigurinn í dag
Brynjar, þjálfari Þróttar Vogum var ánægður með sigurinn í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Þór Gestsson, þjálfari Þróttar Vogum var að vonum ánægður með sigur sinna manna gegn Vængjum Júpíters í 3. deildinni í dag.

Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir Þrótt í baráttunni um að komast í 2. deild.

„Við vorum með bakið uppvið vegg og þurftum að vinna. Þetta var hörkuleikur, jafn leikur. Tölurnar gefa kannski ekki alveg rétta mynd. Þetta var bara stál í stál," sagði Brynjar.

Þróttur er með pálmann í höndunum í baráttunni um að komast í 2. deildina en Brynjar er ekki á því að eftirleikurinn verði auðveldur, þrátt fyrir að Þróttur mæti nýföllnum Reynismönnum í lokaumferðinni.

„Reynisliðið er með hörkulið. Þeir eru að vísu fallnir en þeir horfa á Þrótt, sem eiga möguleika á að fara upp og þeir gefa það ekkert."

Þróttur vann Vængi Júpíters 3-0 í dag og nefndi Brynjar nokkur atriði sem voru lykillinn að sigrinum í dag.

„Mér fannst það vera gredda og gæði. Það eru gæði í Marteini sem hefur verið svolítið í frysti í sumar. Hann hefur ekki fengið marga sénsa. Hann tók það bara í dag og sýndi hvað hann getur. Hann afgreiddi þessi færi sín alveg gríðarlega vel. Ég held að menn hafi komið aðeins afslappaðari út í seinni hálfleik og náðum við að halda boltanum meira."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner