Kristinn Ingi Halldórsson var þreyttur, en sæll með sigurinn gegn Breiðablik í kvöld.
„Þetta var mjög erfiður leikur. Við unnum virkilega mikið fyrir þessu. Við börðumst mjög vel og vorum fastir fyrir og fengum ekki á okkur mark sem gerði það að verkum að við gátum tekið þetta í lokin," sagði Kristinn.
Það var ágætis vindur á annað markið í kvöld og þótti liðunum betra að vera á móti vindinum.
„Það er erfitt þegar það er blautur völlur og svo vindur, þá spýtist hann svolítið og þá er erfitt að ná honum á bakvið. Það er stundum gott að hafa vindinn til þess að hægja aðeins á boltanum."
Kristinn skoraði eina mark leiksins en það kom eftir skot Einars Karls sem var varið af Gunnleifi. Kristinn var réttur maður á réttum stað og lagði boltann í netið.
„Þetta er mitt hlutverk að reyna að djöflast og vera mættur. Ég veit að það er mjög hættulegt þegar Einar skýtur og þá reyni ég að vera mættur þegar boltinn kemur aftur út. Því hann getur skotið helvíti fast."
Flestir eru á því að Valsmenn séu nú þegar búnir að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn en þeir hafa níu stiga forskot á annað sætið og eru aðeins fjórir leikir eftir. Kristinn vill ekki viðurkenna að þetta er búið.
„Nei þetta er ekki komið. Níu stig og Stjarnan er með gott markahlutfall. En þetta lítur mjög vel út.

Athugasemdir