Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   sun 10. september 2017 21:42
Magnús Þór Jónsson
Óli Jó: Í Blikaliðinu eru menn sem nenna ekki að hlaupa í 90 mínútur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var kampakátur Óli Jó sem mætti í viðtal eftir 1-0 sigur á Blikum í kvöld.

"Þessi leikur gaf þrjú stig eins og aðrir leikir og ég er mjög sáttur við það"

Leikurinn var býsna kaflaskiptur, Blikar stjórnuðu ferðinni í fyrri hálfleik en Valsarar voru sterkari í þeim seinni.

"Blikarnir áttu nokkrar vænlegar sóknir í fyrri hálfleik, bara nokkuð margar meira að segja en þeir fóru illa að ráði sínu í þeim.  Við töpuðum boltanum klaufalega og vorum ekki að hlaupa til baka.

Í hálfleik fórum við yfir grunnvinnu sem þarf að vinna.  Menn þurfa að hlaupa og dekka, við erum nógu góðir í fótbolta en menn verða að setja hærra tempó og vera þolinmóðari."


Óli þurfti að hræra til í taktíkinni í kvöld og við það virtist koma meiri ró í uppspilið, skipti taktíkbreytingin máli.

"Taktíkin skiptir ekki öllu máli.  Við settum óþreytta leikmenn inná, Blikarnir voru búnir að vera duglegir að dekka okkur  og hlupu mikið en ákveðnir menn í Blikaliðinu nenna ekki að hlaupa svona í 90 mínútur, ég veit það alveg og við nýttum okkur það."

Níu stiga forskot og fjórar umferðir eftir, eigum við ekki að giska á það að Valsmenn nái í þau fjögur stig sem þeir þurfa til að landa titlinum?

"Ég sagði fyrir leik að staða okkar gæti verið betri eftir leikinn og þannig er það.  Það getur allt gerst í þessum fótbolta en staða okkar er mjög góð."

Nánar er rætt við Óla í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir
banner
banner
banner