Heimild: MBL
Brynjar Ásgeir Guðmundsson er búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við Íslandsmeistara FH.
Brynjar er 23 ára gamall leikmaður sem getur leyst margar stöður af hólmi og lék 12 leiki á nýliðnu tímabili þar sem hann gerði tvö mörk.
Brynjar er 23 ára gamall leikmaður sem getur leyst margar stöður af hólmi og lék 12 leiki á nýliðnu tímabili þar sem hann gerði tvö mörk.
Morgunblaðið greinir frá því að Brynjar hafi fengið boð frá öðrum félögum en ákveðið að halda sig við uppeldisfélagið.
Brynjar á 43 leiki að baki fyrir FH í deild og bikarkeppnum og hefur skorað 6 mörk fyrir félagið. Hann hefur þá einnig leikið fyrir öll yngri landslið Íslands og á tvo leiki að baki fyrir U21 árs landsliðið.
Athugasemdir