Emil Hallfreðsson, miðjumaður Hellas Verona og landsliðsins var skiljanlega svekktur eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Lettum í kvöld.
Ísland var 2-0 yfir í hálfleik eftir mjög góðan leik en komust ekki af stað í seinni hálfleik. Emil viðurkennir að svekkelsið var mikið eftir leik.
Ísland var 2-0 yfir í hálfleik eftir mjög góðan leik en komust ekki af stað í seinni hálfleik. Emil viðurkennir að svekkelsið var mikið eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 2 - 2 Lettland
„Já, mjög mikið, við áttum frábæran fyrri hálfleik og hefðum kannski átt að vera komnir í þrjú eða fjögur núll."
„Við áttum að vera löngu búnir að drepa leikinn en 2-0 í hálfleik er ekki slæm staða en svo kom eitthvað kæruleysi og þetta er eitthvað sem við getum lært af."
„Við vorum ótrúlega oft komnir of margir fram á við."
Athugasemdir