Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 10. október 2015 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Given ekki með Írum í úrslitaleiknum
Mynd: Getty Images
Gamla brýnið Shay Given verður ekki með Írlandi í leiknum mikilvæga gegn Póllandi á morgun.

Given fór meiddur af velli í ótrúlegum 1-0 sigri Írlands á heimsmeisturum Þýskalands á fimmtudag og ljóst að meiðslin munu halda honum frá leikvellinum í einhvern tíma.

Rob Elliott hefur verið kallaður inn í hópinn í hans stað en Darren Randolph, varamarkvörður West Ham, mun væntanlega standa í markinu. Hann kom inn fyrir Given í fyrri hálfleik gegn Þýskalandi.

Leikurinn gegn Póllandi er úrslitaleikur um hvort liðið fer beint í lokakeppni EM á næsta ári en liðin eru jöfn að stigum í öðru og þriðja sæti, með stigi minna en topplið Þýskalands sem leikur gegn Georgíu á sama tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner