Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
banner
   lau 10. október 2015 18:50
Arnar Daði Arnarsson
Hannes: Úr karakter hjá okkur þessi seinni hálfleikur
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hannes Þór Halldórsson markvörður íslenska landsliðsins, var að vonum óánægður með niðurstaða eftir leik landsliðsins gegn Lettum í dag.

2-2 jafntefli staðreynd eftir að íslenska landsliðið hafi leitt 2-0 í hálfleik og allt var í blómanum. Fyrsta mark Letta í upphafi seinni hálfleiks sló íslenska liðið heldur betur út af laginu.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  2 Lettland

„Það eru allir grútsvekktir með úrslitin. Við þurfum að leggjast yfir þennan leik og sjá hvað fór úrskeiðis. Þetta var mjög úr karakter hjá okkur þessi seinni hálfleikur," sagði Hannes sem segir það vera afar lélegt að missa niður tveggja marka forskot á heimavelli.

„Við eigum að vinna öll lið 2-0 yfir í hálfleik á heimavelli. Að missa forskotið niður í þessum leik, við þessar aðstæður er mjög lélegt af okkur. Við skoðum það sem fór úrskeiðis."

Hannes segir að það verði þó að líta á jákvæðu púnktana líka úr þessum leik sem voru fjölmargir í fyrri hálfleik.

„Það má ekki gleyma því að við spiluðm frábæran fyrri hálfleik og við verðum að líta á það jákvæða úr þessu líka. Sloppý og lélegt að fá á okkur tvö mörk í seinni hálfleik."

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner