Þorvaldur Örlygsson hefur verið ráðinn þjálfari Keflavíkur en Vísir.is greinir frá þessu í dag.
Þorvaldur skrifaði undir tveggja ára samning við Keflvíkinga sem féllu úr Pepsi-deildinni á dögunum.
Þorvaldur skrifaði undir tveggja ára samning við Keflvíkinga sem féllu úr Pepsi-deildinni á dögunum.
„Við urðum svo skotnir í Þorvaldi í fyrsta viðtali og að ég held hann skotinn í okkur. Okkur fannst þetta smellpassa alveg rosalega flott. Við teljum hann vera hæfasta manninn í þessa stöðu,“ sagði Jón G. Benediktsson, nýr formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, við Vísi í morgun.
Jón bætti við að Keflvíkingar stefni rakleiðis aftur upp í Pepsi-deildina.
Þorvaldur hætti sem þjálfari HK um síðustu helgi eftir tveggja ára starf en hann hefur einnig þjálfað Fram, ÍA, KA og Fjarðabyggð á ferli sínum.
Hann tekur við liði Keflavíkur af Hauki Inga Guðnasyni og Jóhanni Birni Guðmundssyni sem stýrðu liðinu síðari hluta sumars.
Athugasemdir