Næstsíðustu umferð undankeppni EM lýkur í dag þegar leikið verður í þrem riðlum.
Hæst ber að sjálfsögðu síðasti heimaleikur strákanna okkar sem fram fer á Laugardalsvelli klukkan 16 í dag. Þó sætið á EM sé tryggt hjá Íslandi er að miklu að keppa í hinum leikjunum tveim en Holland og Tyrkland eru í baráttu um umspilssæti og Tékkar vitanlega í baráttu við okkar stráka um toppsætið.
Í B-riðli eru Wales og Belgía í vænlegri stöðu að fara beint á EM en Ísrael á enn veika von á að ná öðru af toppsætunum tveim.
Í H-riðli er gífurleg spenna þar sem Ítalía, Noregur og Króatía berjast um efstu sætin en Norðmenn mæta Ítölum í lokaleiknum og þurfa því helst að næla sér í þrjú stig gegn Möltu í dag.

laugardagur 10. október
A-riðill
16:00 Ísland-Lettland RÚV
16:00 Kasakstan-Holland Stöð 2 Sport
18:45 Tékkland-Tyrkland Stöð 2 Sport
B-riðill
18:45 Andorra-Belgía
18:45 Bosnía-Herzegóvina-Wales Stöð 2 Sport 2
18:45 Ísrael-Kýpur
H-riðill
16:00 Azerbaijan-Ítalía Stöð 2 Sport 3
16:00 Noregur-Malta Stöð 2 Sport 2
18:45 Króatía-Búlgaría Stöð 2 Sport 3
Athugasemdir