Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 10. október 2017 19:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Faðir Arons: Það þarf einhver að passa þessa litlu
Icelandair
Aron Einar fagnar í gær.
Aron Einar fagnar í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eins og áður hefur komið fram komst Gunnar Malmquist Gunnarsson, faðir Aron Einars, landsliðsfyrirliða, ekki á landsleik Íslands gegn Kosóvó í gær. Ísland tryggði sér sæti á HM með því að vinna leikinn.

Ástæðan var sú að Gunnar sá um að passa dótturdóttur sína.

Í viðtali við RÚV í kvöld útskýrði Gunnar það nánar af hverju hann komst ekki á leikinn mikilvæga í gær.

„Það þarf einhver að passa þessa litlu," sagði hann þá.

Gunnar segist vera gríðarlega stoltur af syni sínum sem mun leiða Ísland út í fyrsta leik á HM í Rússlandi næsta sumar.

„Ég er mjög stoltur, maður er stoppaður út á götu endalaust. Maður er dálítið grobbinn af þessu enda má maður vera það."

Smelltu hér til að sjá viðtalið á RÚV



Athugasemdir
banner