Flugfélagið Circle Air á Akureyri ætlar að bjóða upp á beint flug frá Akureyri til Rússlands næsta sumar.
Kaffið.is segir frá þessu, en flugfélagið sendi frá sér tilkynningu á Facebook.
Kaffið.is segir frá þessu, en flugfélagið sendi frá sér tilkynningu á Facebook.
Búist er við því að margir Íslendingar muni gera sér ferð til Rússlands næsta sumar til þess að fylgjast með íslenska landsliðinu í fótbolta etja kappi á Heimsmeistaramótinu sem fram fer í landinu.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, einn forsvarsmanna Circle Air, segir í samtali við Vikudag.is að flugfélagið hafi ákveðið að slá til seinna mark Íslands í gær en Ísland vann þá Kosóvó 2-0 á Laugardagsvelli.
Eftir leikinn var það ljóst að farseðillinn til Rússlands væri tryggður.
Nú þegar hafa um 300 manns skráð sig hjá Circle Air, en þeir flugu líka til Frakklands á EM á síðasta ári.
Athugasemdir