Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 10. október 2017 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kante ætlaði sér að verða endurskoðandi
Kante kann meira en að spila fótbolta.
Kante kann meira en að spila fótbolta.
Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn N'Golo Kante skaust hratt upp á stjörnuhimininn í fótboltanum.

Kante gekk í raðir Leicester árið 2015 og hefur síðan þá unnið ensku úrvalsdeildina með bæði Leicester og Chelsea.

Það tók hann langan tíma að komast á þann stað þar sem hann er í dag. Hann var lengi í "bumbuboltanum" í Frakklandi ef svo má að orði komast, en hann var með skothelt plan ef fótboltinn myndi ekki ganga upp. Hann lærði að vera endurskoðandi.

„Ég var í varaliðinu hjá Boulogne, sem var sjöttu og síðan fimmtu efstu deild Frakklands. Ég var ekki atvinnumaður þannig að ég hélt áfram að læra," sagði Kante.

„Ég var ekki viss um að ég yrði atvinnumaður."

„Ég lærði endurskoðun í tvö ár en þegar ég komst upp í aðalliðið hætti ég í námi og gerðist atvinnumaður. Ég ætlaði að verða endurskoðandi, en í dag vil ég frekar einbeita mér að fótbolta."
Athugasemdir
banner
banner