Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 10. október 2017 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lewandowski var að útskrifast úr íþróttaháskólanum í Varsjá
Mynd: Getty Images
Robert Lewandowski, pólska markamaskínan sem hefur gert 85 mörk í 103 deildarleikjum fyrir FC Bayern og 51 mark í 91 landsleik, var að útskrifast úr háskóla.

Lewandowski útskrifaðist úr íþróttaháskólanum í Varsjá eftir að hafa skilað inn lokaritgerð.

Lewandowski útskrifaðist með íþróttakennaragráðu með áherslu á þjálfun og stjórnun.

Sóknarmaðurinn er 29 ára gamall og hefur verið meðal bestu sóknarmanna heims undanfarin ár.

Það verður áhugavert að fylgjast með því hvort hann ákveði að verða knattspyrnustjóri þegar atvinnumannaferlinum líkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner