Saido Mane, leikmaður Liverpool, verður frá keppni í allt að sex vikur vegna meiðsla aftan í læri.
Mane meiddist á 89. mínútu í 2-0 sigri Senegal á Grænhöfðaeyjum í undankeppni HM á laugardag.
Ljóst er að Mane verður ekki með Liverpool í stórleiknum gegn Manchester United á laugardag.
Mane meiddist á 89. mínútu í 2-0 sigri Senegal á Grænhöfðaeyjum í undankeppni HM á laugardag.
Ljóst er að Mane verður ekki með Liverpool í stórleiknum gegn Manchester United á laugardag.
Mane hefur skorað þrjú mörk í fjórum leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en hann er nýkominn til baka eftir þriggja leikja bann sem hann var dæmdur í eftir rautt spjald gegn Manchester City.
Athugasemdir