Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 10. október 2017 09:43
Magnús Már Einarsson
Sonur Heimis Hallgríms: Hvað segja efasemdarmenn núna?
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Hallgrímur Heimisson, sonur Heimis Hallgrímssonar landsliðsþjálfara, kom með skemmtilega færslu á Twitter eftir að sætið á HM var tryggt í gærkvöldi.

Heimir stýrði íslenska landsliðinu með Lars Lagerback fyrir EM í fyrra og á EM þar sem Ísland fór í 8-liða úrslit.

Lars hætti eftir EM og einhverjar efasemdaraddir fóru á loft í kjölfarið um það hvort Heimir myndi ná sama árangri einn í brúnni.

„Hvað segja efasemdarmenn núna?? Pabbi fyrstur á EM og fyrstur á fokking HM," sagði Hallgrímur í Twitter færslunni sem má sjá hér að neðan.

Sjá einnig:
Heimir: Nokkrir sem sögðu mér að „casha út" eftir EM



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner