Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 10. nóvember 2017 23:00
Helgi Fannar Sigurðsson
Jones fór meiddur af velli í kvöld
Phil Jones.
Phil Jones.
Mynd: Getty Images
Phil Jones, varnarmaður Manchester United og enska landsliðsins, fór meiddur af velli á 24. mínútu í vináttuleik Englands og Þýskalands í kvöld.

Meiðslin eru á læri og eru svipuð þeim sem Jones varð fyrir í leik með Manchester United gegn Huddersfield í síðasta mánuði þar sem hann þurfti einnig að fara af velli.

Ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en gera má þó ráð fyrir að Jose Mourinho, stjóri Manchester United, sé nokkuð áhyggjufullur.

Joe Gomez kom inn í liðið fyrir Jones í leiknum í kvöld en hann var að spila sinn fyrsta landsleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner