Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 10. desember 2014 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Aaron Ramsey: Frábær svipur, Sanogo!
Aaron Ramsey skoraði ,,screamer
Aaron Ramsey skoraði ,,screamer" í gær.
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal á Englandi, var í skýjunum með seinna mark sitt gegn Galatasaray í Meistaradeild Evrópu í gær en hann lýsir því sem fallegasta marki sem hann hefur skorað fyrir félagið.

Ramsey var í aðalhlutverki hjá Arsenal í gær en hann lagði upp fyrsta mark leiksins er Lukas Podolski skoraði laglegt mark áður en hann bætti svo sjálfur við öðru marki.

Það var þriðja mark leiksins og annað mark Ramsey sem vakti verðskuldaða athygli en hann lét þá vaða af 35 metrunum úr erfiðri stöðu og söng boltinn í netinu.

,,Boltinn kom þarna rétt fyrir utan teiginn og ég hugsaði bara af hverju ekki? Sem betur fer fór hann svo inn," sagði Ramsey.

Hann tjáði sig einnig á Twitter en þar sagði hann markið það fallegasta sem hann hefur skorað sem og gerði grín að svip Yaya Sanogo.

,,Kláruðum riðilinn með stæl og núna get ég ekki beðið eftir drættinum. Ég var svo að sjá annað marki mitt aftur og það er klárlega það fallegasta sem ég hef skorað. Frábær svipur Yaya Sanogo!," sagði Ramsey á Twitter.


Athugasemdir
banner