Tottenham hefur greint frá því að Emmanuel Adebayor verði ekki með liðinu í næstu leikjum en hann er farinn til heimalandsins Tógó í leyfi.
Tottenham vill ekki greina frá því í hvaða erindagjörðum Adebayor er en hann sakaði á dögunum móður og systur sína um að beita sig nornagöldrum.
Tottenham vill ekki greina frá því í hvaða erindagjörðum Adebayor er en hann sakaði á dögunum móður og systur sína um að beita sig nornagöldrum.
,,Við getum staðfest að Emmanuel Adebayor hefur fengið leyfi til að fara til heimalandsins af persónulegum ástæðum," sagði Tottenham í dag.
,,Þetta er hans einkamál og við munum ekki koma með frekari yfirlýsingar."
Ekki hefur verið gefið upp hvenær búist er við að Adebayor snúi aftur til Englands.
Athugasemdir