HK/Víkingur, sem leikur í fyrstu deildinni hefur fengið vænan liðsstyrk fyrir komandi átök en Hlín Gunnlaugsdóttir er komin frá Breiðablik. Þetta kemur fram á vef HK.
Hlín, sem er 25 ára gömul, er uppalin hjá Breiðabliki en hún hefur leikið 158 mótsleiki og gert 15 mörk.
Hún lék með HK/Víkingi seinni hluta tímabilsins í sumar og hefur nú nú samið við félagið og mun því spila með því næsta sumar.
Stefna HK/Víkings er að komast aftur upp í Pepsi-deildina en liðið lék þar sumarið 2013 og var þá nálægt því að komast upp í sumar.
Athugasemdir