Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 10. desember 2014 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Moyes vill fá Januzaj til Sociedad
Mynd: Getty Images
David Moyes, þjálfari Real Sociedad á Spáni, vill fá belgíska ungstirnið, Adnan Januzaj, á láni frá Manchester United en Telegraph greinir frá þessu.

Januzaj, sem er 19 ára gamall, hefur leikið ellefu leiki fyrir Man Utd á þessari leiktíð en hefur þó ekki sýnt sitt rétta andlit.

Louis van Gaal, stjóri Man Utd, gælir nú við að lána belgíska vængmanninn en David Moyes hefur mikinn áhuga á að fá hann til Real Sociedad.

Moyes er maðurinn sem gaf Januzaj tækifærið hjá Man Utd en talið er að viðræður hefjist á næstu vikum.

Sociedad hefur gengið illa í byrjun tímabils en liðið er í fjórtánda sæti með 13 stig.

Athugasemdir
banner
banner
banner