mið 10. desember 2014 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Unified football - keppni í blönduðum liðum fatlaðra og ófatlaðra
Mynd: Guðmundur Sigurðsson
Mynd: Sindri Guðmundsson
Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu fóru fram í Reykjaneshöllinni laugardaginn 6. desember. Leikarnir eru samstarfsverkefni KSÍ, NES í Reykjanesbæ og Special Olympics á Íslandi.

KSÍ hlaut Hvataverðlaun ÍF 2014 fyrir áralangt samstarf við ÍF og Special Olympics á Íslandi en þar hafa Íslandsleikarnir í knattspyrnu skipað stóran sess. Keppt var í blönduðum liðum þar sem 4 fatlaðir og 3 ófatlaðir eru saman í liði.

Keppnin er hluti af alþjóðlega verkefninu Unified football. Auk keppenda frá aðildarfélögum ÍF voru meðspilarar frá lögreglunni, knattspyrnufélaginu Víði í Garði og 4. flokki Keflavíkur.

Dómarar frá KSÍ sáu um dómgæslu á leikunum. Áður en leikarnir hófust hlupu lögreglumenn og nokkrir keppenda með logandi kyndil um götur Reykjanesbæjar en hlaupið er hluti af aþjóðleg verkefni LETR, Law Enforcement Torch Run.

Lögreglumenn hlaupa kyndilhlaup fyir leika Special Olympics og síðan er eldur leikanna kveiktur um leið og setning fer fram. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar setti mótið og kveikti eld leikanna ásamt Jakobi Gunnari Bergssyni knattspyrnumanni. NES varð efst í A flokki og lið FB varð efst í B flokki

Heildarúrslit
Athugasemdir
banner
banner
banner