Arsenal hefur áhuga á hinum 21 árs gamla Goncalo Guedes ef að marka má erlenda fjölmiðla í dag.
Guedes er samningsbundinn franska stórliðinu PSG en hann er á láni hjá Valencia þessa stundina. Þessi portúgalski vængmaður kom til PSG frá Benfica í sumar áður en hann var lánaður til Spánar.
Guedes er samningsbundinn franska stórliðinu PSG en hann er á láni hjá Valencia þessa stundina. Þessi portúgalski vængmaður kom til PSG frá Benfica í sumar áður en hann var lánaður til Spánar.
Guedes hefur spilað 11 leiki fyrir Valencia í deildinni á þessu tímabili og skorað í þeim þrjú mörk. Arsenal sjá hann fyrir sér sem arftaka Alexis Sanchez og Mesut Özil sem báðir verða samnigslausir næsta sumar.
Þá er Arsenal einnig orðað við Thomas Lemar hjá Monaco en Lundúnarliðið var á höttunum á eftir honum í sumar.
Athugasemdir