Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. desember 2017 15:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Belgía: Ari Freyr spilaði í tapi Lokeren
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Club Brugge 3 - 1 Lokeren
1-0 Hans Vanaken ('2)
2-0 Benoit Poulain ('11)
3-0 Abdoualy Diaby ('24)
3-1 Steve De Ridder ('59)

Ari Freyr Skúlason var á meðal byrjunarliðsmanna Lokeren þegar liðið reyndist of lítill biti gegn Club Brugge í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta á þessum sunnudegi.

Ari spilaði í stöðu vinstri bakvarðar hjá Lokeren.

Club Brugge gekk frá leiknum á fyrstu 24 mínútunum með því að skora þrjú mörk og komast í 3-0.

Steve De Ridder minnkaði muninn þegar hálftími var eftir en Lokeren komst ekki lengra og lokatölur 3-1 fyrir Club Brugge.

Það hefur ekki gengið vel hjá Lokeren og er liðið næst neðsta sæti deildarinnar þegar 18 leikir eru búnir.
Athugasemdir
banner
banner