Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 10. desember 2017 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Liverpool og Everton: Gylfi og Lovren fá 5
Mynd: Getty Images
Það var jafn í grannaslagnum í Liverpool í dag. Everton sótti Liverpool heim að Anfield.

Liverpool komst yfir þegar Mohamed Salah skoraði undir lok fyrri hálfleiksins en Everton tókst að jafna á 77. mínútu með marki Wayne Rooney úr vítaspyrnu.

Everton-liðið fer sáttara heim úr þessum leik.

Sky Sports hefur tekið saman einkunnir úr leiknum. Gylfi Sigurðsson var einn af slakari mönnum Everton og fær 5 í einkunn.

Einkunnir Liverpool: Mignolet (6), Gomez (6), Klavan (6), Lovren (5), Robertson (6), Henderson (6), Milner (6), Mane (6), Oxlade-Chamberlain (6), Salah (7), Solanke (6)

Varamenn: Firmino (5)

Einkunnir Everton: Pickford (6), Kenny (7), Holgate (6),
Williams (6), Cuco Martina (4), Gueye (6), Calvert-Lewin (5), Davies (5), Sigurdsson (5), Rooney (6), Niasse (5)

Varamenn: Lennon (6), Schneiderlin (6)

Maður leiksins: Jonjoe Kenny
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner