Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 10. desember 2017 13:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Giroud bjargvættur Arsenal
Mynd: Getty Images
Southampton 1 - 1 Arsenal
1-0 Charlie Austin ('3 )
1-1 Olivier Giroud ('88 )

Franski sóknarmaðurinn Olivier Giroud kom Arsenal til bjargar gegn Southampton í 16. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Arsenal lenti undir eftir þrjár mínútur eftir mistök frá Per Mertesacker. Charlie Austin nýtti sér mistök Mertesacker og kom boltanum fram hjá Petr Cech í marki Arsenal, 1-0.

Southampton var sanngjarnt 1-0 yfir í hálfleik og var með forystuna alveg fram á 88. mínútu en þá tók varamaðurinn Olivier Giroud upp á því að jafna fyrir gestina frá Lundúnum.

Lokatölur 1-1 í Southampton í dag. Arsenal er nú með jafnmörg stig og Liverpool, sem er í fjórða sæti. Southampton er í tíunda sæti deildarinnar og hefur safnað 18 stigum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner