Tveir leikmenn Liverpool fengu að heyra það meira en aðrir á samfélagsmiðlum eftir 1-1 jafntefli Liverpool gegn Everton í dag. Leikmennirnir sem um ræðir eru Dejan Lovren, og Sadio Mane.
Lovren var gagnrýndur fyrir að gefa Everton vítaspyrnu þegar 77 mínútur voru búnar af leiknum, en Mane eftir að hann misnotaði dauðafæri til að koma Liverpool í 2-0.
Lovren var gagnrýndur fyrir að gefa Everton vítaspyrnu þegar 77 mínútur voru búnar af leiknum, en Mane eftir að hann misnotaði dauðafæri til að koma Liverpool í 2-0.
Mane var kominn í mjög álitlega stöðu með þrjá leikmenn sér til hliðar en í staðinn fyrir að senda skaut hann. Skot hans var ekki gott og rúllaði fram hjá markinu.
Jurgen Klopp var spurður út í atvikið eftir leik en hann vildi ekki kenna Mane um eitt né neitt.
„Hann bjó til færið sjálfur og hélt að hann gæti skorað. Það það sem sóknarmenn gera," sagði Klopp.
Smelltu hér til að sjá myndband af atvikinu.
Don’t know why Mane tried it himself, if he passed it would’ve been a 100% goal. We move onto the next match. pic.twitter.com/xqLReJjLRh
— SamueI (@VintageSalah) December 10, 2017
Athugasemdir