Varnarmaðurinn Orri Sigurður Ómarsson hefur tilkynnt danska liðinu Horsens að hann muni ekki ganga í raðir félagsins frá Íslandsmeisturum Vals.
Það er Morgunblaðið sem segir frá.
Það er Morgunblaðið sem segir frá.
Valur og Horsens komust að samkomulagi um félagaskipti Orra í nóvember og í kjölfarið fór hann út til Danmerkur þar sem hann skoðaði aðstæður og spilaði æfingaleik með liðinu.
Danska félagið sagði í kjölfarið að tekin yrði ákvörðun um framhaldið viku síðar.
Orri fékk hins vegar engin svör og ef hægt er að marka heimildir Morgunblaðsins er hann búinn að fá nóg. Hann hefur tilkynnt Horsens að hann muni ekki ganga í raðir félagsins.
Orri var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði Vals í sumar.
Sjá einnig:
Orri: Þetta er rosalega skrýtið og asnalegt
Athugasemdir