Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. desember 2017 18:56
Ívan Guðjón Baldursson
Paddy Power borgaði öllum sem veðjuðu á Lukaku
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Manchester United eru brjálaðir út í Romelu Lukaku sem hefur ekki þótt standa sig nægilega vel í undanförnum leikjum.

Lukaku tókst ekki að skora gegn Manchester City og gerðist sekur um varnarmistök í báðum mörkum City í leiknum, sem tapaðist 2-1 á Old Trafford.

Mikið hefur verið rætt um að Lukaku standi sig ekki í stóru leikjunum. Þar af leiðandi grínast notendur Twitter með að nú hafi sú kenning verið afsönnuð, því Lukaku lagði bæði mörk gestanna upp.

Írska veðmálafyrirtækið Paddy Power tók grínið skrefinu lengra og borgaði út til allra sem höfðu veðjað á að Lukaku yrði maður leiksins.





Athugasemdir
banner
banner
banner