Real Madrid hefur áhuga á að reyna að fá Sergi Roberto frá erkifjendum þeirra í Barcelona.
Florentio Perez, forseti Real Madrid, er sagður hafa mikinn áhuga á að fá inn 25 ára gamla Roberto til félagsins og er hann jafnvel tilbúinn að selja Dani Ceballos og Luka Modric til að fjárfesta kaupin.

Félagsskipti milli þessara félaga hafa alltaf verið mikið á milli tannanna á fólki og ber þá helst að nefna þegar Luis Figo skipti úr Barcelona yfir í Real Madrid.
Barcelona er á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forskot á Real Madrid sem situr í þriðja sæti deildarinnar.
Athugasemdir