Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. desember 2017 16:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rooney: Alltaf gaman að skora gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
„Þetta er stórkostlegt stig fyrir okkur," sagði Wayne Rooney, markaskorari Everton í 1-1 jafntefli gegn Liverpool í dag.

Liverpool er stórkostlegt lið með góða einstaklinga. Við vissum að þetta yrði erfitt og við vissum að við yrðum að vera þolinmóðir. Við vörðumst frábærlega," sagði Rooney enn fremur.

Rooney er uppalinn hjá Everton og þá var hann á mála hjá Manchester United í 13 ár. Honum þykir því einstaklega gaman að skora fótboltamörk gegn Liverpool.

„Það er gaman að spila gegn erkifjendunum. Það er frábært fyrir borgina og það er montréttur í boði. Stuðningsmenn Everton verða ánægðari en stuðningsmenn Liverpool."

„Það er alltaf gaman að skora gegn Liverpool, sama fyrir hvern þú skorar markið," sagði Rooney.

Um vítaspyrnudóminn hafði Rooney þetta að segja:

„Hann ýtti honum og dómarinn tók rétta ákvörðun."
Athugasemdir
banner
banner
banner