Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 10. desember 2017 18:07
Ívan Guðjón Baldursson
Rússland: Sverrir Ingi gerði sigurmarkið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FK Rostov 1 - 0 Ufa
1-0 Sverrir Ingi Ingason ('22)

Sverrir Ingi Ingason gerði eina markið er FK Rostov hafði betur gegn Ufa í rússneska boltanum.

Heimamenn í Rostov fengu aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig og ákvað Alexander Zuev að gefa háan og lausan bolta inn í teig.

Sverrir Ingi var tilbúinn til að taka við fyrirgjöfinni enda hafði hann losnað frá vörn gestanna og var einn á auðum sjó. Hann gat varla annað en skorað með skalla af afar stuttu færi.

Leikurinn var nokkuð jafn eftir þetta og er þessi sigur mikilvægur fyrir Rostov sem er núna fjórum stigum frá fallbaráttunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner